Lifid i London
Myndir
28.02.2007 16:55:08 / duar

Til hamingju með daginn Finnur Yngvi

Hann Finnur Yngvi, pabbi mola frænda míns og unnusti Siggu systur minnar á afmæli í dag.

 Til hamingju með daginn Finnur Yngvi

 

 

Þarna eru skötuhjúgin á síðustu halloween.
 
 
 
Kveðja frá London
Gunnhildur 
 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.02.2007 10:37:10 / duar

Til Hamingju með daginn Bryndís Erla

Systir mín hún Bryndís Erla á afmæli í dag og er 12 ára. Þeir sem vilja óska henni til hamingju geta gert það á heimasíðu hennar: http://www.bryndiserla.com/

 

Til Hamingju með daginn Bryndis Erla minnsta systir

 

Hér erum við systur á jetski í september síðasliðnum.

 

 

 

Kveðja frá London
Gunnhildur

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 21:18:51 / duar

alltaf að borða

Held ég eigi við át vandamál að stríða þessa dagana. Get ekki hætt að borða, langar alltaf í eitthvað meira. Eldaði mér mexico súpu í dag, og borðaði hana tvisvar. Fyrst klukkan 5 og svo klukkan 7. Eftir það langaði mig súkkulaði, svo ég borðaði lion bar. Svo núna um 9 leitið langaði mig í köku. Var næstum búin að baka eina, en hljóp svo út í búð og keypti bara köku. Búin að borða af henni og svo nokkur súr snuð. Eins gott að ég fari í ræktinna reglulega... eða er ég kannski bara ólétt eins og Sigga systir dreymdi???

 

 

Kveðja frá London

Gunnhildur 


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 17:29:29 / duar

menn

Ef ég eignast son, mun uppvask og að skilja ekki eftir matardiskinn sinn í stofunni vera það fyrsta sem ég kenni honum.

 

Kveðja frá London

Gunnhildur


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 09:44:37 / duar

ekkert vatn

Í gær fór rafmagnið af öllum hæðum nema minni. Sjónvarpið mitt datt út, sem var áfall, þar sem ég var að horfa á Hollyoaks. Og útihurðinn sem er rafmagnshurð datt út einnig og gat ég því hvergi farið. En það versta var að vatnið fór líka. Þetta var um 7 leitið í gærkvöldi. Mig vantaði rosalega að fara í sturtu, en var viss um að þetta yrði komið í lag þegar ég vaknaði. Og viti menn, allt komið í lag NEMA VATNIÐ. Og nú þarf ég að fara í lestina, skemmtilega skítug. Verður það fyrsta sem ég geri þegar ég kem til Bradford að fara í sturtu! (Ætli þetta sé einhver leið hjá Bretum til að spara vatnið??)

 

Kveðja frá London

Gunnhildur 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 18:00:58 / duar

ekkert að gerast

Ég vildi að ég hefði eitthvað skemmtilegt að segja, en er bara alveg tóm!

Er farin að spila fótbolta aftur með liði í Camden Town, sem er mjög fínt, hef allavegana eitthvað að gera tvisvar í viku og kynnist fólki.

Er að fara til Bradford á morgun, svo kannski ég hafi eitthvað skemmtilegt að segja eftir það.

 

Kveðja frá London

Gunnhildur 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 15:25:30 / duar

bollur

Heyrðu er bolludagurinn í næstuviku?? Á maður þá að fara baka bollur. VEI VEI!

Er einhver farin að taka eftir því að mér leiðist og vil fara fá vinnu?

 

Kveðja frá London

Gunnhildur 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 20:34:34 / duar

skinkuhorn

Ég held ég sé búin að borða 10 skinkuhorn í dag og mig langar í fleiri! Spurning um að fara á námskeið í hófsemi!

Verð ein heima alla næstu viku þar sem Jon er að fara á eitthvað námskeið í burtu og svo fer ég til Bradford á fimmudaginn með Rosie. Við erum að fara í afmæli, rosa stuð! Hlakka svoltið til meirasegja, farin að sakna allra í Bradford.

 

Kveðja frá London

Gunnhildur 


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 20:25:46 / duar

Sorg

Þeir sem ekki vita, þá les ég alveg óhemju mikið af fréttum á netinu. Fréttir allstaðar að úr heiminum og af við skulum segja mismunandi áhugasömu og mis fróðlegu efni. Sem þýðir að ég les allt og þar á meðal slúður. Og þá sérstaklega upp á síðkastið þar sem ég vafra um á netinu að sækja um vinnur og svo tek pásu í fréttalestri. Málið er bara þegar maður les svona mikið af slúðri þá fer maður eiginlega þekkja fólkið sem það er um, þótt maður hafi aldrei einusinni séð það.

Þannig hef ég t.d orðið besta vinkona Önnu Nicole Smith frá því að sonur hennar Danniel dó inn á herberginu hennar, eftir að hún átti dóttirina Dannielynn (skírð eftir að sonur dó).

Ég veit allt um þetta mál og hef meira segja mínar kenningar um þetta sem eru náttúrlega bara byggðar á því mis áræðinlega efni sem ég hef lesið. Málið er nefnilega að ég held að Howard Stern "kærasti/lögfræðingur" Önnu, hafi gefið syni hennar þessar pillur sem samanvið aðrar pillur sem drengur hafi verið að taka og það leitt hann til dauða.

En nú er þessi vinkona mín dáin og ég farin að syrgja (sit hérna í al svörtum klæðnaði og með kerti á borðinu)

Og eftir dauða vinkonu minnar og alla þá frétta lesningu sem ég hef farið í gegnum í dag, þá ekki bara stend ég við fyrri kenningu mína, heldur, held ég að Howard Stern hafi bara spilað sama leik og sett einhverjar pillur í pokan hennar Nicole, sem með öllum hinum pillu/koktel blöndonum, hafi leitt hana til dauða.

En svo er náttúrulega hver er pabbi Dannielynn... þarf aðeins að ransaka það betur þar sem þeim mönnum sem telja sig vera faðirinn virðist fjölga með hverjum deginum. Enda kannski ekki skrítið þar sem daman gæti erft um 475 milljón dollara eða svo.

 

En kannski maður snúi aftur til raunheima og fari að lifa eigin lífi...... er nefnilega að baka skinkuhorn og ég held að deigið hafi loksins hefað sig.

 

Kveðja frá London

Gunnhildur


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 21:22:24 / duar

kalt

Það er kalt í London þessa dagana og allt fullt af snjó, og þar sem ég kann ekkert á þetta hita kerfi hérna kom afmælisgjöfin frá mola sér mjög vel í dag. Hann gaf mér nefnilega svona vetlinga, sem maðu tengir með USB við tölvuna og þá hitna þeir. Þetta er alveg búið að bjarga deginum, reyndar ásamt lopapeysunni minni og inni loð sokkonum sem mamma gaf mér.

 

 

Kveðja frá London

Gunnhildur 


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 15:22:11 / duar

þorrablótið

Þorrablótið var fínt! Það var engin kinda haus samt, en maturinn var góður og sérstaklega lambið sem var svona aðalrétturinn. Jon fannst þetta allt svolítið skrítinn matur en smakkaði nú allt.

Þetta minnti reyndar á skólamót úr HR þar sem hellingur af liði sem var í viðskiptafræðinni býr í London.

Við dönsuðum aðeins og fannst mér ég nú vera 17 ára aftur á balli með skímó í miðgarði.

En annars var þetta nú bara hefðbundið þorrablót með tilheyrandi ættjarðarljóðum og kórsöng.

Kveðja frá London
Gunnhildur

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 03:15:47 / duar

íslendingur

Þorrablót-hangikjöt-harðfiskur-síld-hrútspúngar-skyr og skítamórall er þetta virkilega að vera íslendingur ég bara spyr??

Kveðja frá London
Gunnhildur

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 16:03:51 / duar

fugla flensa

Er málið ekki bara að vera grænmetsæta og fisk æta? Held það ef ég má ekki borða kjúkling lengur í Bretlandi vegna hættu á að fara fuglaflensu, þá get ég alveg eins sleppt öllu kjöti þar sem kjúklingur er aðal uppistaða fæðu minnar. Fyrir utan kannski skinku... eins gott að ég er ekki múslimi, þá mundi ég þurfa lifa á grasi.


En fæ nú gamalt skemmt lamb og lamba innefli í kvöld. Það ætti að breyta út af vananum.

Kveðja frá Londn
Gunnhildur

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 15:11:57 / duar

bíða

Ætli fyrirtæki láti mann bíða vísvitandi eftir svari til að stressa mann meira upp?? Klukkan er orðin meira en 15:00 og það er föstudagur. Þori ekki einusinni að fara út afþví ég er svo hrædd um að heyra ekki í símanum. Ég verð geðveik ef ég þarf að bíða fram á Mánudag!


Kveðja frá London
Gunnhildur

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 23:06:21 / duar

þreyta

Ég er svoooo þreytt! Viðtalið gekk vel.. að ég held. Fæ að vita á morgun hvernig það fer.

Skímó og þorramatur á laugardainn. Hlakka svoltið til, ekki bara afþví að Dagbjört mun koma til London og upplifa árið 1997 með mér (árið sem ég fór síðast á skímó (spurning hvort við mætum með vodka pela í veskinu líka)) heldur hlakka mér sérstaklega til að sjá svipin á Jon þegar ég mana hann til að borða kinda haus. Það verða sko teknar myndir.

Annars er ég bara farin í rúmið og reyna sofa svoltið.

Kveðja frá London
Gunnhildur

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2