Lifid i London
Myndir
05.06.2008 17:38:44 / duar

Flug

Þó ég fari nú mikið í flugvél og finnst gaman að ferðast. Þá er ég nú oft hálf flughrædd.

Í gær gerði ég heiðarlega tilraun til að fara til London og pakka restinu af dótinu mínu svo ég gætti flutt út úr íbúðinni. Átti þetta vera stutt stopp, vera komin til London á miðvikurdags kvöld og aftur til Munchen á föstudagskvöl.

Ég er búin að vera vinna mikið og var frekar þreytt svo ég sofnaði áður en vélin fór á loft sem er yfrileitt uppháalds flugferðirnar mínar.

Þegar við vorum um það bil að fara lenda um 2 tímum seinna var ég ný voknuð og hafði tekið tónlistina úr eyrunum líkt og flugfryan bað mig um. Flugvélin var farin að haga sér frekar ófriðlega og var mér ekki farið að standa á sama. Heyri ég þá ekki flugstjóran tala á Þýsku og fanns mér hann segja Munchen einum of oft miða við vorum á leiðinni til London. Var það ekki fyrr en hann fór yfiri í Ensku að ég áttaði mig á að við vorum að fara lenda aftur í Munchen.

Ég ákvað þá að ræða við flugfreyunu og sagði hún mér að það væri bilunu í vélinni og þeyr treystu sér ekki til að lenda í London þar sem ekki væri fólk þar til að laga bilunina.

Já þarna sat ég í brjáluðu veðri í bilaðri vél og þakkaði guði fyrir að ég vissi þetta aðeins 15 mín fyrir lendingu og hafi ekki heyrt tilkinninguna klukku tíma áður.

Við lentum loksins í Munchen og þurftum að standa í langri röð til að fá miðnum breytt í flug sem færu í dag.

Ég tók upp símann og hringdi í ferðaskrifstofuna sem sér um mín flug og bað þeim vinsæmlegast að afskrifa öll flug á mig þessa vikuna.

Reyni kannski aftur um næstu helgi.

Kveðja frá Munchen
Gunnhildur


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.05.2008 01:39:37 / duar

Áfram Ísland

Eins mikið og ég er búin að gera mikið út á þetta Eurovision hérna meðal Ameríkanans, þá var gott við komust áfram! En nú er málið að sína þeim að við  frá norður Íslandi getum gert meira enn drekka Íslenskt Brennivín, Tóbas skot og éta hákarl! Svo það verður massa stuðningur í Munich öskrandi Áfram Ísland og WE LOVE YOU FRIKKI AND REGINA!!


Ekki hafa ágyggjur, þau vita að ég er frá íslandi og halda að ég sé rugluð hvort sem er!!


Kveðja frá Munchen
Gunnhildur
















» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 15:43:27 / duar

alltaf a ferðinni

Það er nú búið að vera aldeilis flækingur á minni undanfarið. Fór til Florence á Ítalíu fyrir 2 vikum og svo bauð ég Mark vini mínum til London um síðustu helgi.

Í dag er frí dagur í Munich og er ég búin að fara í rosa stóran hjólatúr þótt sólin hafi ekki látið sjá sig þá er veðrið mjög gott.

Hér er ekki sýnt frá undankeppni Eurovision en ég er búin að finna enskumælandi lið sem ætlar að horfa á Úrslitin á Laugardagskvöldið á einhverjum bar. Svo ég mæti á það eins og sannur Íslendingur og Eurovision fan. Heyrði reyndar bara Íslenska lagið í vikunni og auðvita vinnum við í ár líkt og síðustu 21 skiptin sem við höfum tekið þátt.

Þótt Eurovision sé ekki sýnt á frí stöðunum sem ég næ hérna á hótelinu þá var úrslitaleikurinn í gær sýndur og lá ég nagandi neglurnar upp í rúmi og horfði á leikinn og auðvitað endaði þetta allt vel og besta liðið vann.

Það er búið að breyta frídögunum mínum hérna í Munich ég var alltaf að vinna í 10 daga(ekki sunnudaga samt) og svo 4 daga fríi aðra hverja helgi. Nú vinn ég 4 vikur og fæ 5 daga frí sem hentar mér miklu betur þar sem ég get látið mig hverfa til Íslands eða tekið frí með þessum dögum líkt og ég mun gera til að mæta í brúðkaup systur minnar í ágúst. Mun ég mæta til landsins annaðhvort miðvikurdag eða fimmtudag fyrir verslunarmannahelgi og vera fram yfir brúðkaupshelgina.

Í Júní verð ég heimilislaus eða allavegana í London. Ætla flytja út úr Íbúðinni þar sem er aldrei þar og er orðin leið á að henda laununum í íbúð og reikninga sem ég nota ekki. Jon mun líklegast halda áfram að búða þar ef hann finnur einhver sem vill búa með honum (getur ekki annað verið en það sé annar 23 ára karlmaður). Ég vona reyndar að hann búi þar áfram svo ég geti notað áfram þetta heimilisfang og kannski fengið að gista í sófanum ef ég er í London.

Jæja ætla láta þetta duga í bili, þarf að finna betri leið til að koma inn myndum hérna þar sem ég hef tekið alveg helling af myndum undafarið.

Kveðja frá Munchen
Gunnhildur





» 0 hafa sagt sína skoðun

06.05.2008 17:14:10 / duar

sól sól skín á mig

Hélt kannski að ykkur langaði að vita þetta:

ÞAÐ VAR 21 STIGA HITI, HEIÐSKÍRT OG SÓL Í MUNCHEN Í DAG!!

og kannski langar ykkur líka að vita þetta:

ÞAÐ SPÁIR 21 STIGA HITA, HEIÐSKÍRU OG SÓLA FRAM Á SUNNUDAG!


Gott að ég á hjól sko.... maður verður nefnilega eiga hjól í sól (og kannski líka fara á það stundum)

Kveðja frá Munchen
Gunnhildur




» 4 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 18:12:57 / duar

ég á hjól

Ég á hjól ligga ligga lái... og það er konu hjól! Vantar bara fá mér svona körfu framan á og þá verð ég ekta Munich gella sko... enda allir konur hér á hjóli með körfu framan á. En ástæðan fyrir því að ég er farin að hjóla er að það er búið að vera 20 stiga hiti og sól og um að gera koma sér í form fyrir sumarið!

Annars er bara allt gott að frétta og ég alltaf stödd í Munich.

Biða að heilsa öllum

Kveðja frá Munchen
Gunnhildur


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.03.2008 22:38:11 / duar

næst er það Danaveldið

Já það er ekki hægt að segja annað en við vinkonurnar hafi skemmt okkur konunglega í London þótt mikið hafi verið gengið. Það var alveg frábært að hafa stelpurnar þótt ég hefði viljað hafa íbúðina aðeins hreinni og betri.....en það mátti kannski ekki búast við öðru þegar 23 ára karlmaður hefur búið einn í íbúðinni síðustu 9 mánuði.

Ef þið viljið sjá myndir frá ferðinni þá eru þær á heimsíðunni Dagnýar en það er linkur á hana hérna á síðunni.

Það er ekkert betra en að hitta gamla vini og eða fjölskyldu þegar maður vinnur svona langt í burtu frá  þeim.

Ég ætlaði alltaf að reyna koma til Sigló yfir páskana, en þar sem margt hefur gerts og plön mín breytast hratt of óviðráðanlegum orsökum þá varð ekki af því. Sat ég því hér ein á hótel herberginu mínu á föstudaginn langa með einhverskonar heimþrá!
Svo það var bara eitt hægt að gera..... fór á msn og sá að Eva Karlotta var þar. Og innan við klukku tíma var ég búin að bóka flug til Danaveldis þar sem ég mun heimsækja Evu og Ericu.. og náttúrulega Jón Dúdda frænda minn! Semsagt páskar með vinum og fjölskyldu!

Jón reyndar veit ekkert að ég er að koma, en ég vona að hann sé í Köben...


Ég segji því bara Gleðilega Páska :)

Kveðja frá Munchen
Gunnhildur


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 22:32:26 / duar

og hér sitjum við....

og þær drekka grænan frosk.... ég drekk Stellu..... og hvað núna...

FJÓLUBLÁR TÓPAS.....???

MAMMA...HJÁLP....

Kveðja frá London
Rósa, Dagný.... og Ég


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 22:00:25 / duar

það var mikið...

Að bloggið mitt lifnaði við... ég hef ekki getað loggað mig hérna inn í margar vikur!

Ekki það að ég hafi mikið að segja, nema ég endaði á djammi með íslenskum túristum á afmælinu mínu. Eitthvað lið sem ákvað að djamma á mínum lókal pub hérna í Munchen! Fyrstu íslendingarnir sem ég hitti hérna reyndar. Þeir voru á einhverri útivistar ráðstefnu skildist mér.

En annars er bara allt gott að frétta og ég bara alltaf að vinna og vinna og vinna... en fer nú til London 6 mars til að hitta Dagný og Rósu Marý... ég get ekki beðið og er innkaupalistinn fyrir stúlkurnar alltaf að verða stærri. Svo mikið sem mig langar í frá íslandi sko..

kveðja frá Munchen
Gunnhildur


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 17:53:17 / duar

28

ja eg er 28 ara i dag.....nei eg meina 18.....

 

 

kvedja fra munchen

gunnhildur


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 17:16:29 / duar

Strákarnir okkar

Ég er ekki alveg með á nótunum þessa dagana þar sem það er búið að vera svo mikið að gera. Ég sá reyndar á mbl að það var handbolti í gangi... en þar sem ég er búin að vera í Englandi í nokkurn tíma og ekki séns að sjá neinn handbolta þar var ég nú ekki mikið að spá í það.

En þar sem Sunnudagur og ekki mikið að gera, settist ég fyrir framan tölvuna og horfði á póker í sjónvarpinu á þýsku..... en svo lít ég allt í einu upp og viti menn. Er ekki bara Frakkland og Ísland að spila handbolta í sjónvarpinu.... Já Þýskaland er einmitt svo mikil handbolta þjóð líkt og íslendingar.

 

Þannig það er best ég haldi áfram að horfa á strákana okkar...

 

Kveðja frá Munchen

Gunnhildur 


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 16:15:54 / duar

Í Munich

Jæja þá er verður maður vist að láta vita af sér...

Ég er semsagt komin aftur til Munich i þýskalandi. Ég flaug frá LA 2 Janúar og lenti hér 3 Janúar. Var svo mætt í vinnu þann fjórða og er meira og minna búin að vera þar síðan. 

Planið er reyndar að reyna fara til London helgina fyrir afmælið mitt og athuga hvort Jon sé nokkuð að láta íbúðina okkar mygla... og kannski hitta nokkra vini.

 

Vetrar fötin sem ég fékk í Jólagjöf hafa komið sér mjög vel hérna í kuldanum. En veðrið er svolítið íslenskt og suma daga er hátt í 11 stiga frost og svo suma daga 2-3 stiga hiti...!

 

En ég ætla fara njóta eina (heilaga)frídag vikunar og horfa á eitthvað skemmtilegt á þýsku..

 

Kveðja frá Munich

Gunnhildur 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 17:39:41 / duar

Gelðiðlegt Ár frá Anthem

Við hérna í Anthem óskum ykkur öllum gleðilegs árs.

 

Yfirlit yfir árið mun koma fljótlega, en ég þarf að þjóta í flug þar sem ég er að  leggja leið mína aftur til Munchen.

 

 

Kveðja frá Anthem

Gunnhildur 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.12.2007 20:51:32 / duar

Jól Í Anthem

Þá er þessari átveislu lokið.... eða allavegana á amerískum mælikvarða.

Í dag er ósköp venjulegur dagur hjá ameríkumönnum og þeir að taka niður jólatréið. Á meðan er hin íslensk/ameríska fjölskylda að reyna ná áttum eftir allt átið og lagði leið sína í ræktina!

HVER FER Í RÆKTINA Á JÓLUNUM?? Held það sé komið allt of mikið amerískt blóð í okkur.

 

Annars mætti ég á svæðið 22 desember beint frá Munich... eða beint til LA svo til Phoenix. Fæ frí til 2 jan þegar ég legg af stað aftur til Munich.

Jóliahald var nú ósköp hefbundið að öðruleiti. Borðað reykt lamb klukkan 6 á aðfangadag, pakkar opnaðir og svo lesið og sofið... svo var það blessað hangikjötið í gær.

 

Gjafirnar voru að ýmsum toga en þá aðalega skíða föt sem mér bráð vantar í þýskalandi þar sem er 11 stiga frost í dag. Fékk þessa æðislegu skíða/vetrar úlpu og vettlinga frá ömmu Steinu (þá veistu það amma),  og skíða buxur og north face jakka frá mömmu og pabba, Bryndís gaf mér mjúkasta kodda í heimi og Steina sá til þess að ég hafi nó af peysum í vinnuna. Fékk svo voða fína jóla skál frá ömmu Erlu. En það sem stóð kannski uppúr er bleika Beverly Hills 90210 taskan sem Sigga og Finnur gáfu mér. Hún sló alveg við Sigur Rós DVDinum og náttfötunum sem voru í töskunni. Ég fór alveg 15 ár aftur í tíma og bætti með hana í ræktina í morgun... alveg flottust.

 

Á morgun ætlum við svo að fara á skíði upp í Flagstaff... er að spá í að fá smá snjóbretta kennslu. Langar agalega læra á snjóbretti, en við sjáum hversu mikil hetja ég verð þegar ég mæti á svæðið.

 

Vonandi hafið þið öll átt góð jól...

Kveðja frá Anthem

Gunnhildur

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 23:09:59 / duar

London um helgina

JEYYYYYYY Er að fara til London um helgina. Verður gott að fá smá frí frá Munich og fólkinu sem maður hangir með næstum 24 tíma sólahringsins.

 

Annars er bara allt hvítt hérna en ekkert jólaskraut ennþá..... það eru örugglega einhver lög gegn því að setja skrautið upp of snemma hérna í þýskalandi, það er nefnilega lög gegn öllu hér.

Hérna loka sko allar búðir klukkan 6 ekkert er opið á sunnudögum. Þannig það er ekki séns að kaupa í matinn á þessum tímum. Það er ekki einusinni sjoppur sem maður getur farið í. Bara veitingastaðir..... Og þegar maður hefur borðað á veitingastað á næstum hverjum degi í 6 mánuði, Þá langar manni nú bara grjónagraut og slátur!

 

Kveðja frá Munchen

Gunnhildur 


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 17:13:36 / duar

Kalt Kalt Kalt

Þar sem ég sit í rúminu mínu með sæng yfir mér full klædd, vil ég þakka móður minni fyrir íslensku lopa peysuna sem hún prjónaði handa mér. Þessi lopapeysa er að bjarga lífi mínu þessa dagana þar sem hótelherbergið mitt hérna í Munchen er við frostmark.

Einnig vil ég þakka Ömmu Steinu fyrir ullarvettlinga sem hún prjónaði handa mér, þeir komu sér mjög vel þessa vikuna þegar það byrjaði að snjóa.

En það var gert mikið grín af mér þegar það byrjaði að snjóa og ég mætti í lopapeysu, með lopavettlingana og svo í strigaskóm. Já og ég var mjög blaut í fæturnar.

Einnig skilur fólk ekki afhverju ég neita að ganga með regnhlíf í snjókomu. Mér finnst það bara hallærislegt... er það kannski bara íslendingurinn í mér??

 

Annars er bara gott að frétta. Búið að vera brjálað að gera síðan ég kom úr fríinu 8 október.

Búin að vera í Munchen að mestu, fyrir utan smá ferð til Sviss og lichtenstein sem er land á stærð við Akureyri og samt tókst íslenska landsliðinu að tapa fyrir þeim.

Er að fara til London um næstu helgi að hitt Dagný vinkonu mína sem ég var að vinna með í Símanum í Smáralind forðum daga. Hlakka massa til þar sem hún er sú fyrsta til að koma heimsækja mig frá íslandi. Hvar eru þið hin? Hvenær komið þið?

Jólafríið mitt er ennþá ekki komið á hreint. Veit ekki enn hvort ég fái frí, það fer allt eftir lögfræðingunum sem er að ransaka málið sem ég er að vinna að.... þeim dettur alltaf í hug að vanta eitthvað þegar við eigum frí!

 
Jæja vildi bara láta vita að ég væri á lífi.... og í fullur kulda fjöri!

Kveðja frá Munchen

Gunnhildur 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 21